Tuttugasti og níundi tólfti
jæja.. ég gerði heiðalega tilraun og fór í vinnuna! ég starði á tölvuskjáinn og tölurnar og ekkert gerðist. Gersamlega gagnslaus þannig ég ákvað bara fara í frí. Málið er bara að maður kann ekki að vera svona.. ég meina að gera ekki neitt.. þetta er alveg að taka á og maður þarf að virkilega að læra þetta. Þetta er eitthvað sem maður á að geta gert fyrirhafnarlaust!
Familian er að ná sér eftir yfirsnúninginn vegna flóðbylgjunnar og jarðskjalftanna. Þrátt fyrir að kiddy og valdi séu ekki við ströndina þa höfðum við öll áhyggjur því maður vissi ekki hversu langt þetta hafði áhrif. Einnig var ekki hægt að ná í þau og farið var að hafa áhyggjur að þau hafi farið eitthvað en engin vissi hvert. Svefnleysi og spenna hlóðs upp þannig það var mikill léttir þegar smsið kom:)
Mikið er maður litil manneskja í þessum stóra heimi. En það er ekki þar með sagt að maður geti ekki haft áhrif. Leggið ykkar af mörkum styðjið hjálparstarfið ! símin er 907 2020

0 Comments:
Post a Comment
<< Home